Textastærð

-A +A

11.04.12

Jarðfræðingar frá ÍSOR kynntu mastersverkefni sín á ráðstefnu evrópskra framhaldsnema í jarðhita (European geothermal PhD-day) í Pisa á Ítalíu á dögnum.

03.04.12

Merkur áfangi í orkumálum á Íslandi náðist í gær er þrjú tilboð bárust um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu.

30.03.12

ÍSOR og Háskólinn í Reykjavík auglýsa sameiginlega þrjár nýjar stöður. Um er að ræða rannsóknar- og kennslustöður í jarðvísindum og jarðhitafræðum.

27.03.12

Ársskýrsla ÍSORÁrsskýrsla ÍSOR fyrir árið 2011 er komin á vefinn. Þar kemur m.a. fram að verkefnum erlendis hefur fjölgað umtalsvert. Tekjur vegna þeirra hafa aukist  um 16% á milli ára í 32,7% af heildartekjum ÍSOR fyrir árið 2011. Aðallega var um að ræða verkefni í Chile, Kenía, Níkaragva, Dóminíku, Króatíu, Eþíópíu og Tyrklandi.

22.02.12

ÍSOR hefur ásamt Jarðborunum verið við rannsóknarboranir á eyjunni Dóminíku í Karíbahafi frá því í byrjun desember. Þetta eru fyrstu rannsóknarboranir á eyjunni en jarðhiti þar hefur verið rannsakaður talsvert og eru miklar vonir bundnar við að hægt verði að nýta hann.

17.02.12

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti ÍSOR á dögunum til að kynna sér starfsemina.

03.02.12

ÍSOR tók þátt í Framadögum sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík þann 1. febrúar síðastliðinn.

09.01.12

Vetrarmót norrænna jarðfræðinga er nú haldið hér á Íslandi dagana 9.-12. janúar í Hörpu. Starfsfólk ÍSOR er með fjölbreytt erindi á ráðstefnunni, m.a. um bergfræði, grunnvatnsrannsóknir, landgrunnið og hafsbotninn í tengslum við olíurannsóknir, manngerða jarðskjálfta og jarðhitarannsóknir.

08.11.11

ÍSOR sendi í fyrsta sinn sérútbúinn mælingabíl til borholumælinga og færanlega rannsóknarstofu úr landi nú um síðustu helgi.

03.11.11

ÍSOR tók þátt í einni stærstu alþjóðlegu jarðhitaráðstefnu Bandaríkjanna dagana 23.-26. október sl. í San Diego í Kaliforníu.